...mannfræðimeyjan...

...allt á Huldu...

02.01.2008 21:36:23 / HuldaPulda

jólajólajól búin.....megrun og þunglyndi framundan;)

Jæja....þá er jólabrjálæðið búið og voru jólin bara mjög fín þetta árið. Ármann fór norður og flutti ég bara tímabundið til mömmu yfir jólin og svaf í sófanum...það hefði verið frekar ömulegt að hanga ein í Ásholtinu. Ég át allt of mikið, svaf allt of mikið og las svona hæfilega mikið. Er búin með Ösku og Harðskafa og einhverja þýska sakamálasögu. Svo á ég Þúsund bjartar sólir eftir sem ég get ekki beðið eftir að lesa:)

28. des. fór ég að vinna og vá hvað það var erfitt að vakna kl. hálf 8! En um kvöldið flaug ég til Akureyrar og var þar yfir áramótin...þetta var í fyrsta skiptið sem ég er ekki í Reykjavík yfir áramótin og var ég soldið hrædd um að Akureyringar sprengdu kannski ekkert upp af flugeldum og svona...en það voru óþarfa áhyggjur;)

Annars hef ég mjög góða tilfinningu fyrir nýja árinu, 2008. Ármann útskrifast úr fornleifafræðinni í febrúar, ég fer með vinnunni til Köben og Malmö í apríl, fer svo vonandi í smá utanlandsferð með Ármanni í vor, svo er planið að fara út í nám í haust...fullt að gerast!!!

jæja....best að fara að glápa á sjónvarpið....

p.s. hugsum að gera svona annál fyrir 2007 þegar ég nenni...vona að verði einhverntímann á þessu ári;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.11.2007 19:19:28 / HuldaPulda

:)

           Jæja........................vá hvað ég er löt að skrifa....held ég hafi fengið hálfgert ógeð á að skrifa texta eftir að hafa skrifað BA ritgerðina mína8|

Ég er komin í smá jólaskap:) Held það sé aðallega út af vinnunni...það er svo mikið jólajóla í gangi þar. Það er álfavika í næstu viku, svona vinavika, sem endar á jólagleði starfamanna...ég var svo sniðug að koma mér í matarnefnd fyrir jólagleðina en í því felst að panta mat og skreyta like there is no tomorrow.....fáum alveg að fara út af deild í meira en hálfan dag til að skreyta og gera allt ready..fínt að komast aðeins úr brjálæðinu:D

Ég er líka í föndurstuði og langar soldið að búa til jólakort og senda....held ég leggi samt ekki í það...hef einu sinni búið til kort og þá tókst mér að hella heilli dós af glimmeri á eldhúsgólfið hjá Maríu....held ég kaupi bara kort í Tiger og verð soldið wild og nota kannski gullpenna.....

Svo er ég alltaf að pæla í námi fyrir næsta haust....okkur Ármanni líst svoldið vel á Stokkhólm og námið þar.....hef oftar en einu sinni sagt að ég ætli EKKI í master í mannfræði en svo líst mér bara alveg frekar vel á mastersprógrammið í mannfræði þarna....held að MA í mannó geti alveg nýst í mjög margt....hmmm...

En vá...verð að fara að horfa á gelgjuþáttinn minn...Gossip Girl....gegt skemmtilegur´!


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.11.2007 19:32:51 / HuldaPulda

Veik:(

:( Er veik....búin að vera með kvef og hálsbólgu og bara slöpp..held ég hafi meira að segja fengið smá hita. Fór ekki í vinnuna í dag og ekki í gær og er alveg að drepast úr leiðindu:( Hef ekkert komist í Baðhúsið og ætla bara að vona að ég verði hress í fyrramálið svo ég komist í Body Combatið mitt...fæ alveg fráhvarfseinkenni ef ég kemst ekki í Combatið:( Og svo er Ármann í Stokkhómi með vinnunni og ég verð bara ein heima alla helgina....vá hvað ég er eitthvað hress og jákvæð;)

Annars er allt gott að frétta:) Ármann átti afmæli síðasta föstudag og fórum við á Madonnu í tilefni dagsins...daginn eftir fórum við á BanThai á Laugarveginum og það er bara ÆÐISLEGUR matur...sérstaklega vorrúllurnar:) Og svo á eg afmæli eftir minna en mánuð:)

Mér finnst mjög spes að vera ekki í prófum fyrir jólin...ég veit ekki hvað er langt síðan ég gat undirbúið jólin svona í alvöru...langar til að baka a.m.k. 5 sortir, gera laufabrauð, senda ÖLLUM jólakort, skreyta massívt mikið, kaupa allar jólagjafirnar fyrir lok nóv. og ég veit ekki hvað og hvað...vá hvað ég vorkenni þeim sem eru í prófum til 21.des:(

Svo er ég virkilega að pæla hvort ég eigi að prófa danska kúrinn?? Veit ekki hvort ég nenni því....en þarf að losna við a.m.k. 10 kíló og langar eiginlega að gera það ein frekar en með hjálp frá danska eða einhverju öðru...held ég yrði miklu stoltari af mér ef mér tækist þetta ein:) Þarf bara smá pepp...veit alveg að ég get gert þetta....hef nú lést áður um svona 15 kíló en eitthvað af þeim komin aftur:(

Jebbs....miklar pælingar í gagni....það væri líka gott ef einhver gæti ákveðið fyrir mig hvert ég eigi að fara í mastersnám og hvað ég eigi að læra..takk fyrir!!!

HULDA


» 6 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 22:11:24 / HuldaPulda

SPÁNN 2007

OK...loksins loksins:) Spánn var æði og við gerðum svo mikið að það er erfitt að ætla að segja frá því öllu...en við byrjuðum sem sagt í Alicante og keyrðum þaðan um 2000 km um allan Suður Spán og enduðum svo aftur í Alicante. Fórum til Granda, Sevilla, Jerez, Conil, Tarifa, Marokkó, Marbella Gíbraltar, Torrevieja og keyrðum í gegnum alveg fullt af litlum sætum þorpum.....fórum í fjöllin og á ströndina.....gátum farið í sólbað og alles enda veðrið yfirleitt mjög gott...mesti hiti var 35 gráður!!!!! Þetta var bara frábær ferð í alla staði og við tókum sko fullt af myndum.....hér að neðan er slóðin á smá myndasjów úr ferðinni og er ég búin að skrifa smá um hverja mynd....ef fólk vill sjá fleiri myndir má það bara koma í heimsókn :D

 

 http://public.fotki.com/huldapulda2/

 

HULDA 


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.10.2007 20:49:45 / HuldaPulda

SPÁNN!!!

Komin frá Spáni og það var æði!!!!!!!!!!!!!!!!! Ferðasagan og myndir koma inn við tækifæri;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

20.08.2007 19:36:54 / HuldaPulda

GEISP!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Úff hvað ég er þreytt....langar að leggjast upp í rúm núna8| Ætla samt ekki að gera það...þar sko að þvo;)

Menningarnótt var mjög skemmtileg og öðruvísi en ég hef áður kynnst....við Ármann fórum á tónleikana á Klambó - nei þetta heitir sko EKKI Miklatún..hehe - við hlustuðum á Ljótu hálfvitana og Vonbrigði. LH voru fínir en Vonbrigði...ehh...voru vonbrigði;)

Um kvöldmatarleitið röltum við heim til kunningja hans Ármanns sem er með honum í hljómsveitinni en þar var "grillveisla"....fengum æðislegan grillaðan humar með hvítlaukssmjöri og sítrónu og svona lala svínakjöt og kartöflusalat. Ég var eina kvenkyns lífveran á svæðinu....en auk Manna og vinar hans var þarna gaur í skátabúning eða einhverjum álíka andskota og 2 kunningjar Manna sem eru meðlimir Ljótu hálfvitanna....ég stoppaði ekki lengi þarna því þessir gaurar (þó ekki Ármann;) ) voru...jaaa....ekki beint skemmtilegir að hanga með þegar maður er ekki kall og ekki blindfullur!!!! Samt var maturinn ok;) Ég held það verði laaaangt þangað til ég fer í grillveislu aftur þar sem eru bara gaurar!!

Jamms...svo smá fréttir af atvinnumálum. Ég hætti á Sunnuborginni síðasta miðvikudag og fékk vinnu í apóteki í Álftamýrinni að sjá um vörupantanir og vera í afgreiðslu. Fyrsti og jafnframt síðasti dagurinn minn var í dag:$ Þetta var bara alls ekki að gera sig fyrir mig.....ég hef aldrei starfað við afgreiðslu áður og nú veit ég að það á bara alls ekki við mig8| En ég er fegin að hafa prófað þetta og komið þessu út úr systeminu, þ.e. þessari þörf fyrir að prófa að vinna í búð/afgreiðslu.....eníveis...þá ætla ég að fara aftur að vinna á Sunnuborginni:) Finn að það hentar mér miklu betur og svo er vinnutíminn betri og meira líf og fjör! Þannig að ég er sátt:)

Svo eru stórflutningar eftir minna en 2 vikur....get ekki beðið...klæjar í puttana að fara í IKEA:d

HULDA

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.08.2007 21:56:52 / HuldaPulda

:D

Gaman, gaman, gaman:D Við Ármann skrifuðum undir húsaleigusamning í gær! Á bara eftir að þinglýsa honum og svo getum við flutt inn 1. september! Get ekki beðið:haha: Þetta er svo æðisleg íbúð....frábær staðsetning og 5 mín. í gymið, í 2 vídjóleigur, 2 matarbúðir og 2 mín. að hlaupa á Devitos! Og svo ákvað konan sem er að leigja okkur að skilja þvottavélina sína og ísskápinn eftir þannig að við þurfum ekki að fara í ísskápaleiðangur;)

Svo eru vinnumálin svona svona...ég fæ allavega pottþétt einhverja vinnu...kemur í ljós;)

og já....mæli með þessari mynd: http://imdb.com/title/tt0486358/

HULDA


» 6 hafa sagt sína skoðun

31.07.2007 21:06:16 / HuldaPulda

:)

1. ágúst á morgun8| Sumarið er að verða búið og ég sem ætlaði að gera svo rosalega mikið í sumar....úbbs! Flest allir dagarnir hafa runnið saman í eitt...en ég vona að ágúst verði viðburðaríkur og svo er náttúrulega farið að styttast í Spánarferðina:D

Ég er hugsum að vera innipúki um versló og gera ekkert nema éta nammi, glápa á e-ð í flakkaranum hans bróður míns og éta meira nammi..nema einhver bjóði mér með sér að gera eitthvað skemmtilegt;) Ármann verður í úgglöndum, í Norge, að spila á útirokkmetalhardrock festivali og skilur mig eftir:klikk: Svona er þetta þegar kærastinn er orðinn international metalsúperstar:D

Og já...við skötuhjú erum svona 95% örugg með að vera komin með húsnæði fyrir veturinn:D Þetta er lítil og kósý íbúð á sjöttu hæð í blokk, eða háhýsi eins og ég kýs að kalla það, í Ásholti sem er eiginlega bara þar næsta hús við Snæland Vidjó á Laugarvegi. Þetta er soldið dýrt en ég er sko alveg til í borga fyrir frábæra staðsetningu en ég er 2 mín. að fara á Hlemm (að hitta rónana) og 2. mín. í Baðhúsið:D Gæti ekki verið betra;)

En jæja....best að fara að vaska upp.

Hulda


» 5 hafa sagt sína skoðun

16.07.2007 22:46:20 / HuldaPulda

MYGL

Oj....hvað ég er komin með mikið ógeðis ógeð á að sækja um vinnur:evil: Er ekki að sækja um nein sérstök störf, bara að senda almennar umsóknir út um allt....það er ekkert rosa gaman að fylla út í þessa blessuðu reiti á umsóknunum og skrifa alltaf nákvæmlega það sama!!! Æ, ég vona bara að ég finni einhverja vinnu..er e-ð voða svartsýn þessa dagana en ég hlýt að finna eitthvað..ef ekki þá get ég allavega sagt með góðri samvisku að ég hafi reynt mitt besta í atvinnuleitinni;)

En í e-ð skemmtilegra;) Fór í partý til Önnu Siggu um helgina og hitti mannómeyjarnar og skemmti mér alveg rosa vel....mætti nottla fyrst af öllum í partýið eins og alltaf...ég bara get ekki mætt fasjónablí leit..er svo sjúklega stundvís...legg að sjálfsögðu mikla áherslu á þann mannkost minn í atvinnuumsóknum;)

Svo erum við Ármann á fullu að plana Spánarferðina okkar og vá hvað ég hlakka til!!!!!! Bara 2 mánuðir þangað til:) Ef einhver hefur farið til Suður Spánar og veit um e-ð þar sem er alveg möst að skoða..endilega láta mig vita:)

HULDA......sem er skipulögð, nákvæm og stundvís..allavega skv. ferilskránni;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.07.2007 17:57:14 / HuldaPulda

Útsölur og fl.

Vá, hvað ég læt alltaf plata mig mikið á útsölum...fór í Kringluna um daginn og kíkti í Zöru. Keypti mér peysu og tvo boli á samtals 3500 og fannst ég hafa gert alveg rosa góð kaup....en annar bolurinn kostaði með afslætti 790 kr. en kostað fyrir útsöluna 890 kr. Já..alvega heilar 100 kr. í afslátt, eða um 10% afsláttur, en mér fannst það svo rosa gott tilboð og bara jafnast á við það að bolurinn væri gefins;) Æ, hvað maður getur verið vitlaus...en þetta var samt mjög flottur bolur;)

Svo fór ég í Vero Moda og þar var bara drasl á útsölunni:(  Eldgamlar vörur sem hafa verið á mörgum útsölum í röð, pastellitaðir síðermabolir með blúndum og annað hvort allt og litlar eða stórar buxur...þ.e.a.s. á mig og auðvitað met ég vöruúrval búða eingöngu út frá mínum frábæra vexti....hmmm:$

Annars held ég að mér sé að fara aftur í kaupmætti..hehe:) Fór í Kringluna áðan með Ármanni og hann keypti sér bol, bók og geisladisk en ég kom heim með Opal pakka.....og nammi úr Nammilandi og diet-kók...kannski er málið að eyða peningnum í eitthvað annað en nammi?!

Jebbs....ætla fara að éta meira nammi;)

Hulda


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.07.2007 18:41:52 / HuldaPulda

:) og :(

 Það er alltaf föstudagur:) Vinnuvikan er svo rosalega fljót að líða...en ég held það sé bara gott....mér leiðist allavega ekki í vinnunni. Ég er eiginlega mjög fegin að hafa ákveðið að vinna á Sunnuborginni í sumar....fínn vinnutími, ég get verið úti í sólinni og er orðin alveg rosa brún - eða svona ljósbleik;) Svo er ég að vinna með mjög fínu fólki og krakkarnir eru alveg frábærir...svona langoftst:) Ég er mest búin að vera á einni af yngri deildinni og það voru að byrja ný börn sem eru algjör beibís....bara eins og hálfs! En algjör krútt.

Mig langar samt svo mikið í frí og til úgglanda!!! Það eru allir að fara í frí í vinnunni nema ég og 2-3 aðrir.....en ég fæ frí í september...bara 2 og hálfur mánuður eftir.

Annars er mest lítið að frétta...mamma og Egill eru í Róm og ég öfunda þau ekki...jú, ok soldið mikið:klikk: En það er fínt að vera ein heima og svona...og svo kemur Ármann á eftir....svo ég get hætt að tala við kettina;)

Hulda


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.06.2007 21:34:31 / HuldaPulda

Hið daglega líf :)

Það er nú ekkert mikið að frétta.....bara vinna vinna vinna:) Var inni í allan dag að vinna í eldhúsinu á leikskólanum og missti af góða veðrinu:( Hefði alveg verið til í að hanga úti að leika í staðinn fyrir að skera niður rófur og setja í endalaust margar uppþvottavélar:(

Við Ármann skelltum okkur til Þingvalla um helgina í tjaldútileigu:) Fórum með allt draslið okkar í rútu en hún fór frá BSÍ klukkan hálf 9 á laugardagsmorgun!!! Hef það á tilfinningunni að mjög fáir Íslendingar taki Þingvallarútuna því allir töluðu ensku við okkur:) En allavega...við átum og átum aðeins meira, fórum í langan göngutúr, átum aðeins meir, spiluðum Jatzy, borðuðum meira, lágum í leti og svo brann ég í framan.....:( Það var frábært veður um helgina en frekar hvasst..eiginlega bara skítarok...en þetta var samt æðisleg ferð:D

Svo erum við Ármann búin að panta flug til Alicante frá 20. september til 3. október!!!! Hlakka ekkert smá til að fara....eftir bara 3 mánuði...úff allt of langt þangað til:evil:

En jæja....best að fá sér smá ís:)

Hulda


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.06.2007 20:19:35 / HuldaPulda

Loksins......

Er útskrifuð frá Háskóla Íslands með BA próf í mannfræði :D

Í raun ekkert meira um það að segja....bara æðisleg tilfinning og rosa skrýtið að vera komin með háskólagráðu;)

 Hulda mannfræðingur :)


» 8 hafa sagt sína skoðun

02.06.2007 17:11:00 / HuldaPulda

:D

                        ......Æ hvað ég er löt að skrifa hérna...ástæðan er kannski sú að ég hef ekkert gert síðustu 2 vikur annað en að vinna og fara í Baðhúsið og sofa!!! Það tekur svo á að vera að vinna 8 tíma á dag..ég sakna eiginlega bara skólans og að geta ráðið tímanum sínum sjálf:) En það er fínt að vera byrjuð að vinna....hef mest verið með yngstu krökkunum sem eru um 2 ára og þau eru algjör krútt:D Geta, skilja og vita miklu meira en maður heldur...

Svo er ég bara að útskrifast eftir 2 vikur sléttar! Er búin að fá einkunn fyrir BA ritgerðina mína og fékk ég 9....gæti ekki verið ánægðari:D

Svo þarf ég að fara að leita mér að vinnu og íbúð til leigu fyrir haustið....ef einhver veit um e-ð sniðugt endilega látið mig vita:D

HULDA

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.05.2007 15:44:20 / HuldaPulda

Týpískt!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

     Búin að öllu skólaveseni....byrja ekki að vinna fyrr en næsta mánudag og ætlaði að nýta þetta frí í að fara í göngu- og hjólatúra og í Baðhúsið og dúlla mér...en NEI!!! Er nottla orðin veik..alveg týpískt:( Er með kvef og illt í hálsinum og hausverk........þoli ekki svona tímasetningar! Er búin að vera svo stressuð undanfarið og loksins þegar ég get slappað af þá bara hrynur líkaminn minn:(

En yfir í e-ð skemmilegra:D Er hugsum að hafa smá útskriftarveislu 16. júní vegna fjölda áskoranna:) Það verður gaman:D

Annars er ég bara að fara að flytja aftur til mömmu í sumar og kveðja Ljósó...en Ármann fór út í skurð í morgun og sé ég hann lítið fyrr en í september...svona er að vera fornleifafræðiekkja;)

Ætla að reyna að taka nokkrar myndir hér af Ljósó og svona og setja inn sem fyrst.....sem minningar fyrir mig og svona:D

En jæja...ætla fara að halda áfram að gera ekki rassgat.

Hulda


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Leitarbox